Aðalvalmynd

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Málmfríður Sigurðardóttir
  • Staður: Laugar
  • Hjúskaparstaða: Í sambandi
  • Um mig: Dóttir, systir, vinkona & unnusta

Smá yfirlit...

15. september 2008 klukkan 22:16
...já sumarið leið og það frekar hratt Siggi hættur á sjónum sem er bara frábært og við flutt inn á ak í alveg rosalega sæta og kósý íbúð!!Svo erum við bæði byrjuð í háskólanum og líkar okkur það bara alveg ágætlega vel, næstum ljómandi bara... svolítið skrítið að vera komin aftur í skóla.. en það er bæði gott og gaman.  Svo er ég byrjuð að vinna á leikskólanum Sunnuból og einnig á Kaffi Karólínu um halgar... jújú það er bara fínt sko!!
10 ágúst áttum við Siggi 1 árs afmæli, ótrúlega alveg hvað tíminn líður...( alveg spurnig ása, balli, svavar og rakel um að fara aftur í Mr & Miss hehe... kannski við siggi gefum ykkur e-n sjens... tíhí!)  en þetta er búið að vera alveg frábært ár hjá okkur...
Svo er bara alveg að koma afmæli hjá mér... vá ég er að verða 24 ára... var alveg ofboðslega glöð því ég stóð alveg einhvernvegin í þeirri merkingu að ég væri að verða 25 ára... vá hvað það var bara gott að græða eitt ár... hehe... 
 
hafið það gott múslurnar mínar...   lot of love  Koss

Það er ekkert að þér....

23. júlí 2008 klukkan 07:29
....fyrst þú getur unnið!!!

já þetta voru svörun sem ég fékk hjá ritara Heilbrigðisstofnunar hér í sveit þegar ég reyndi að leita mér aðstoðar læknis á föstudaginn síðasta.
Já ég er sem sagt búin að vera alveg ótrúlega slæm af gróðurofnæmi núna í svona mánuð.. og er búin að fara 2 sinnum til læknis, og fá lyf!  svo á föstudaginn fannst mér orðið svo erfitt að anda að ég bara ákvað að leita mér hjálpar (læknirinn var líka búinn að segja mér að ef ég færi að fá hósta ætti ég að hafa samband STRAX!!!). ég hringi í saklaisi mínu inn á spítala og spyr eftir lækninum mínum, og þá bara NEI! hann á ekki lausann símatíma í dag... og ég bara Ok, hann var nefnilega búinn að segja að ég ætti að hafa samband um leið og mér versnaði e-ð! konan bara hann á lausann tíma ef þú vilt koma í skoðun núna 13:30, (ok ég var að vinna og var í mývósveitó)  ég bara neee ég kamst því miður ekki.. ég er að vinna...  þá færir konan sig heldur betur upp á skaftið og bara... sko ef þú getur unnið þá er ekkert að þér og þú þarft ekkert að leita þér læknis!!!   vá mér brá svo... kom löng þögn í símann... ég alveg vá seigðu e-ð alveg brill... neinei þá ropa ég uppúr mér... jahhhh maður lætur sig nú hafa ýmislegt!!!
Hvað á e-n kona sem tekur niður tímapantanir hjá læknum með það að sjúkdómsgreina mann og dæma!!  vá veistu mér varð svo mikið um að ég þurfti að safna kjarki til að hringja aftur um 14:00 til að tala við annann lækni!!  mér fannst ég bara vera algjör auli að þurfa að leita mér læknishjálpar...  en sem betur fer gerði ég það því hann vildi fá mig strax í skoðun og kom í ljós að ég er mér væga sýkingu í lungunum!!!  grey konan!!!

annars er bara allt gott hjá mér... við mamma skruppum suður á Skaga um helgina.. fórum í 40 afmæli Baldurs.. það var bara alveg ótrúlega gaman!! takk fyrir allt það Ása og Balli!
annars er ég bara að leka niður hérna... er búin að vinna voðalega mikið núna vann í 18,5 tíma í gær og fyrradag!! enda er ég bara alveg búin á því núna og sé rúmið mitt svo í hilligum... en það verður að bíða til 15:30 og þá ætla ég að sofa í 2 daga!!!
svo er Siggi minn alveg að koma heim... og við alveg að fara að byrja í skólanum... vá hvað sumarið er búið að líða alveg ótrúlega hratt!! Júlí er bara að verða búinn... úff...

jæja kallarnir eru að koma í morgunmat!!
    hafið það gott
                                                                                            Malla Sig

þetta mánaðalega!!!

12. júlí 2008 klukkan 17:26
Vá það er bara næstum  því mánuður síðan ég skrifaði e-ð hérna síðast... en það er svo sem eitt og annað búið að ske síðan þá!

það er búinn að vera alveg frábært hópur hjá okkur í vinnuni núna síðustu 3 daga.... það er svo gaman þegar svona hópar koma...(reyndar ekki í tiltekt á morgnanna)  bara eins og litlir krakkar að fá fyrsta nammið eða e-ð þannig... alveg ótrúlega spennó!!!
Alveg magnað að vita að þetta eru menn sem eru mjög ríkir... þá meina ég MJÖG... alveg milljónamæringar ef ekki milljarðamæringar.... jább...   og koma þeir hérna og sleppa svo algjörlega af sér beislinu og það stoppar þá ekki neitt... BARA EKKI!!!!  og þetta er svona árlegur viðburður.... þegar ég verð komin á þennann aldur... sem eru bara jahhh alveg 12 - 16 ár... þá vil ég vera svona..... þá meina ég ekki að vera milli... það væri svo sem ekki leiðinlegt... en jámm... ég vil bara geta skilið draktina og meikið eftir heima... og skemmt mér með vinum mínum alveg út í eitt... og ekki skemmir stemmarinn á bakkanum fyrir....   
já það er fjör....

En annars:
Hitti Höllu mína og Olluna mína líka um helgina... það var gott var ekki búin að sjá þær í alltof langann tíma...
náði bara ekki nægum tíma með þeim....  það batnar á Fiskidaginn... vá hvað ég hlakka til þá....
Við Siggi fengum bæði inn í UNAK. sem er alveg bara frábært... svo erum við líka búin að fá íbúð... og já... núna bíðum við bara eftir því að geta byrjað að búa saman... tókum smá prufu á því út í Dk náttúrulega... og það gekk alveg fínt bara... og hlökkum við mikið til þess að fljúga úr hreiðrum okkar í heimahögunum.... en auvitað er alltaf söknuður líka!!!
Já Siggi er kominn og farinn...  áttum mjög góðan tíma saman... fórum að veiða... og vá þetta er bara frábært...  við eigum alveg öll áhugamál saman sko... eða svona næstum.... svo er bara spurning hvort að maður fari í skotveiðiprófið í haust... VÁ hvað mig langar bara að fara....    úfff það væri geggjað!!!     

æhhh samt er ég svo þreytt að ég bara hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa hérna....
hef þetta ekki lengra í blii....
    

Það er alveg örugglega sumar eða er það ekki??

18. júní 2008 klukkan 16:12
... þegar ég vaknaði í morgun hélt ég að ég hefði sofið af mér sumarið og það væri svona endinn á sept. byrjum okt... jújú vitið menn það snjóaði, sliddaði og skein sól í morgun... allt í einu....
þetta er mjög skrítið... í gær var sungið... blómin springa úr og þau svelgja í sig sól.... því sumarið er komið og 1/2 ár enn í jól... eða e-ð þannig... svo núna syngjum við bara   snjókorn fall á allt og alla....  
já þetta er alveg ótrúlegt þetta veðurfar hérna á Ísl.  Hvar var að tala um að sumrin væru hlínandi/batnandi á Ísl. góða.... mér finnst SNJÓR ekki vera til his betra!!!!

annars bara allt gott... Siggi fékk svar frá skólanum í dag... og hann auðvitað komst inn þessi elska... ég bara sit og naga á mér negglurnar núna og vona það besta með mína umsókn!!
Hallan mín var að fara til Mallorca í morgun... ekkert lítið sem ég öfunda hana...
Baldur mágur minn varð 40 ára í gær og innielga til lukku með það kallinn!
annars er bara verið að vinna á fullu, og lítið samband við umheiminn hefur verið haft síðan ég byrjaði að vinna.... ég er bara á haus nánast. en það er svo sem gott   Gráðugur
hehe
Svo er Siggi að koma heim núna 3 Júlí og ætlum við að reyna að fara e-ð að veiða saman... ohhh það er svo gott að eiga svona kærasta sem er með alveg sömu áhugamál og maður sjálfur... það er bara GEGGJÐ!!!

Neihhh og núna kingir bara niður snjónum.... ER ÞETTA E-Ð DJÓK ÞÚ ÞARA UPPI?????   nei ég bara spyr??

                      hef þetta ekki lengra!!   hafið það gott rúsinurnar mínar
                                                               Mallilla

Ný færsla.... sko mig!!!

03. júní 2008 klukkan 19:35
Jæja það var mikið að maður druxxxxx til að blogga e-ð hérna...

Jú við skötuhjúg erum komin heim frá Tenerife, þar sem við áttum alveg dásamlega tíma saman.
fórum í alla skemmtigarða sem við funndum, flatmöguðum á ströndinni, snorkuðum í sjónum eins og pró-kafarar, drukkum, átum og skemmtum okkur og öðrum eins og okkur einum er lagið!
Svo tót bara grár hversdagsleikinn við, fengum reyndar alveg um viku hérna heima áður en ég þurfti að fara að vinna...
vorum á Dalvík á júró-kvöldinu því hann Arnar okkar varð 20 ára kallinn... ótrúlega gaman þar á bæ.
Svo reyndum við Siggi bara að nota hverja mínótu til að vera saman þanngað til hann fór á sjóinn sem var bara rétt áðan... og mikið djöfull var erfitt að kveðja hann... búin að hafa hann hjá mér í um 7 vikur...  vildi bara ekkert að hann væri að fara e-ð svona aftur....
en sem beturfer eru BARA 2 túrar eftir (10 vikur) og svo förum við að búa saman...
Bæði búin að sækja um í UNAK (eða Háskólanum á Akureyri) vonandi bara að maður fái inn þar á bæ!! 
Annars bara allt gott... komin á fullt í vinnunni sem er bara frábært. Gott að vera komin aftur í gamla góða hofið!!
annars hef ég bara ekki mikið að segja... 
vonandi bara hafi þið sem best og njótið lífsins!!

                                                                        Malla sem saknar Sigga síns svo mikið

bara skítadrals thessi veidi hérna úti... ekkert fútt í thessu!!!

09. maí 2008 klukkan 13:20

Vitid menn... vid rufum okkur upp á rassgatinu í morgun til ad fara ad VEIDA!!!  
Maettum á bryggjuna litla hressa fólkid og alveg tilbúin til ad takast á vid Sverdfiska, Hákalla, Túnfiska og Djoflaskotur....  
en jámm  Mallan kom bara med ongulinn í rassinum heim sko... vard ekki einu sinni vor!!!  djosss djofull sko!!!
Siggi fékk eina litla iltla LITLA djoflaskotu!!   ógó sáttur med thad!!
Ég vard reyndar PÍNU sjóvek í byrjun ferdarinnar...  en ákvad ad aela ekki thegar ég sá manninn vid hlidin á mér aela morgunmatnum svona nett út úr sér... honum fannst thad ekkert mál.... en hann missti bara allt coolid vid thad ad aela og ekki gat ég hugsad mér thad!!  thannig ad ég beit á jaxlinn og bara hélt áfram thessari djosss veidi!!!  á medan aeldi gaurinn ollu sem hann átti og fékk svo bara ad leggja sig!!!

En jámm annars bara allt gott... vedrid alveg mega magnad!
kannski stundum OF heitt... en thad er bara gott og gaman!! hehe

annasr ekkert ad frétta... fórum í ótrúlega auman dýragard hérna...  monkey park eda e-d thannig... thad eina magnada vid gardinn var thegar apinn stal pokanum hans Sigga... hehe...

en jámm... aetla út í sólina...      blessjú
  

Vá ég bara vissi hreinlega ekki ad thad gaeti ordid svona heitt!!!

05. maí 2008 klukkan 14:03

já thetta er ekkert grín hérna meginn á línunni sko.... thad er bara 33-37 grádur hvern einasta dag... ég hélt í vonina upp á klakanum ad thad yrdi svona 25 -30 grádur sem hefdi reyndar verid alveg fínt sko... thetta er ótrúlega heitt... enda liggur madur bara eins og skata allann daginn og skridur svo í sjóinn til ad kaela sig nidur...

en jámm í dag á pabbi "gamli" afmaeli og innilega til lukku med thad!
einnig í dag er Halla vinkona ad fá bílprófid sitt aftur... og óska ég thér til lukku med thad og fardu varlega í umferdini elskan...
svo núna 9 maí á Ása systir einnig afmaeli og vil ég bara óska henni til hamingju med thad!

en jámm annars bara allt gott...  erum ad vinna í thví ad worka tanid... gengur svona... hehe

hef thetta ekki lengra í bili erum ad fara ad snorka í sjónum...

    heyrumst elskurnar....   hafid thad gott  
                                                           

Blogg beinnt úr sólinni...

01. maí 2008 klukkan 18:31
Jaeja vid komum til Tenerife i gaer... that var alveg svakalegt mistur yfir ollu... eru afnangar her af hitabilgju sem buin er ad vera her i 6 daga... allt ad 45 gradur... en sem betur fer er that nu buid.... en mistrid er ennta sem er frekar fult... en solin er samt alveg ad meika that herna sko....
eg er alveg komin med frekknur sko...
en jamm thad er alveg ohaett ad segja tad ad vid Siggi seum alveg yngst i thessari ferd sko....  tetta var allt folk a aldrinum 65-75+ sko... og Vá ellismella lyktin sem gaus upp í vélinni thegar hún var opnud... hehe bara eins og á elliheimili!!!  en thetta er bara alveg frábaert sko....  hehe
hótelid er bara alveg stór gott....  herbergid sem vid erum í er á 2 haedum... fínt bara...

veit svo sem ekkert hvad ég á ad segja meira í bili... ekkert spes búid ad ske svona 1 daginn...
vonandi hafid thid that bara gott í snjónum heima.... vid hofum thad allavegana alveg stórfínt hérna...

kossar og knús úr 35 grádunum....   

e-ð smá....

27. apríl 2008 klukkan 21:31
Gelðilegt sumar elskulega fólk og takk fyrir veturinn  *KNúS*

Jæja ég ákvað það að þetta er ekki hægt lengur... ég verð að skrifa e-ð hérna!

Siggi er kominn heim, og er kominn í trúa-frí sem er bara frábært... og við tókum þá ákvörðum að fara til útlanda í fríinu hans... og stefnan tekin á Tenerife núna í appslafelsi í 3 vikur... ohhh hvað ég bara get ekki bðið!!

Er að hætt í vinnunni á morgun... og byrja ekki í nýju vinnunni fyrr en 29 maí!  þannig að það er alveg mánaðafrí hjá mér...

Við Siggi erum búin að vera alveg ótrúlega menningaleg þetta fríið og fórum í leikhús tvö kvöld í röð!  fórum á  Þar sem Djöflaeyjan rís, þetta er bara alveg ágætis sýning... svona öðruvísi!!
Svo fórum við á fló á Skinni og vá þar erum við að tala um klassa verk... OMG bara... þetta er verk sem allir verða að sjá... held bara að ég hafi ekki hleigið svona ótrúlega mikið á einu kvöldi!

vá ég er ekki einusinni búin að pakka og við erum að fara inn á víkina á morgun suður hinn og úr þar á eftir!!   kæruleisi.is sko.... hehe

veit ekki hvort að ég skirif e-ð hérna áður en við förum út... finn vonandi net-kaffi úti til að bloggast e-ð smá....
annars þá bið ég ykkur bara vel að lifa og njóta lífsins!

....

10. apríl 2008 klukkan 00:18
ég er með ritstíflu... get bara ekki fundið neitt sem mig langar til að skrifa um...   vonandi að það komi samt bráðlega!!!

    Luv ya gæs

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...